Fasteignamiðlun kynnir eignina Lækjargata 11, 580 Siglufjörður, nánar tiltekið eign merkt 01-01, fastanúmer 213-0761 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi. Eignin Lækjargata 11 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 213-0761, birt stærð 117.8 fm.
Nánari upplýsingar veitir Arndís Erla Jónsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 6907282, tölvupóstur [email protected].Um er að ræða þriggja herbergja íbúð á einni hæð með stórum timburpalli. Íbúðin hefur verið mikið endurgerð eins og þak, vatnslagnir, raflagnir, gluggar, baðherbergi, eldhús og gólfefni. Einnig hefur verið sprautað þennslu efni í vegg að garði og komið í veg fyrir leka. Eignin samanstendur af forstofu, eldhúsi, stofu, tveimur rúmgóðum svefnherbergjum, baðherbergi, þvottahúsi og geymslu. Í sameign með efri hæð telst stigagangur og hluti af geymslurými í kjallara. Stór garður fyrir aftan eignina er einnig í sameign.
Forstofa: er flísalögð með góðum fataskáp.
Eldhús: er með hvítri rúmgóðri innréttingu og flísum á gólfi, Útgangur er út á stóran timburpall frá eldhúsi.
Stofa: er parketlögð með góðu gluggarými og útsýni.
Svefnherbergi: eru tvö mjög rúmgóð með parket á gólfi.
Baðherbergi: er með flísum í hólf og gólf, walk inn sturtuklefa, upphengdu salerni og innréttingu. Opnanlegur gluggi er á baðherbergi.
Þvottahús: er í kjallara með góðri loftun og glugga.
Geymsla: er mjög rúmgóð einnig í kjallara með steyptu máluðu gólfi.
Kjallari: skiptist í sameignar- og séreignarsvæði.
Garður: er fyrir aftan eign og er í sameign.
Fasteignamiðlun ehf - Grandagarði 5 - 101 Reykjavík - Arndís Erla Jónsdóttir löggiltur fasteignasali í Fjallabyggð Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignamiðlun fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.