Eyrarflöt 2, 580 Siglufjörður
48.900.000 Kr.
Parhús/ Parhús á einni hæð
5 herb.
130 m2
48.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
1990
Brunabótamat
70.150.000
Fasteignamat
41.850.000

Fasteignamiðlun kynnir eignina Eyrarflöt 2, 580 Siglufjörður, nánar tiltekið eign merkt 01-01, fastanúmer 213-0113 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi. Eignin Eyrarflöt 2 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 213-0113, birt stærð 130.0 fm.

Nánari upplýsingar veitir Arndís Erla Jónsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 6907282, tölvupóstur [email protected].


Um er að ræða parhús á einni hæð með skjólgóðum garði í suður og fjórum rúmgóðum svefnherbergjum. Samþykki er fyrir byggingu bílskúrs á lóðinni. Eignin samanstendur af forstofu, eldhúsi, borðstofu, stofu, fjórum svefnherbergjum, baðherbergi, þvottahúsi og geymslu. Búið er að endurnbýja þak eignarinnar, vatnslagnir og baðherbergi hefur verið endurgert. Garður er skjólgóður sunnan megin við eignina með timburpalli og girðingu við lóðarmörk. 

Forstofa: er mjög rúmgóð með góðu skápaplássi og flísum á gólfi. 
Eldhús: er góðu skápaplássi og plássi fyrir borðkrók í enda. Gólf er flotað og málað. 
Borðstofa: liggur opin inn í stofu í stóru rými með góðu gluggaplássi og parket á gólfi. 
Stofa: er með parket á gólfi og útgang út á pall. 
Svefnherbergi: eru fjögur öll mjög rúmgóð. Tvö þeirra eru með parket og skápum hin með flotuðu máluðu gólfi. 
Baðherbergi: var endurnýjað fyrir 2 árum með vatnsheldum plötum á veggjum og flísum á gólfi. Walk in sturtuklefi, upphengt klósett, vaskur og innrétting. 
Þvottahús: er með flotuðu gólfi og góðu hilluplássi. Sér útgangur er úr þvottahúsi. 
Geymsla: liggur með þvottahúsi. Gólf er flotað.
Garður: er sunnan megin við eignina með timburpalli og skjólveggjum. Gert er ráð fyrir heitum potti í palli og geymsla er við enda. Garður er grasilagður og vel við haldinn blómabeð. Timburgirðing liggur við lóðarmörk. 

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignamiðlun fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.