Opið hús: 01. maí 2025 kl. 15:00 til 15:40.Opið hús: Skaftahlíð 36, 105 Reykjavík. Eignin verður sýnd fimmtudaginn 1. maí 2025 milli kl. 15:00 og kl. 15:40.
Fasteignamiðlun og Hreiðar Levý lögg. fasteignasali kynna fallega og vel skipulagða 158,4fm, 6 herbergja hæð með sérinngangi og 2 svölum á 1. hæð ásamt bílskúr í fallegu húsi teiknuðu af Sigvalda Thordarsyni arkitekt að Skaftahlíð 36, 105 Reykjavík. Húsið er steinsteypt, kjallari, tvær hæðir og þakhæð. 4 íbúðir eru í húsinu, ein á hverri hæð. Bílskúr er steinsteyptur, 29,8fm með rafmagni og hita. Sérbílastæði fyrir framan bílskúr. Uppsett rafmagnshleðslustöð á útvegg bílskúrs. Gluggar á bílskúr snúa út í garð. Afar falleg hæð í vinsælu og fjölskylduvænu hverfi í lokuðum botnlanga með skóla á öllum stigum í nágrenninu, fjölbreyttri nærþjónustu ásamt útivistarperlunum Klambratúni, Öskjuhlíð og Nauthólsvík í göngufæri.Bókið skoðun hjá hreiðari Levý, lögg. fasteignasala í síma 661-6021 eða [email protected]Eignin skiptist í 114,8fm, 5 herbergja íbúðarhæð. 2 samliggjandi stofur, 3 svefnherbergi, anddyri, hol, eldhús, gangur, 3 svefnherbergi og baðherbergi. Möguleiki er að færa eldhús inn í stofu og bæta þar með við 4 svefnherberginu í hæðinni. Útgengt út á vestur svalir með tröppum niður í stóran fallegan tyrfðan og gróin garð með niðurgröfnu trampolíni.
Í kjallara í sameign er svo 10,7fm herbergi (skráð sem geymsla), salerni og geymsla með vask. Mögulega hægt að útbúa sturtuherbergi (Þarf þá að færa rafmagnstöfluna fram í sameignargang).Framkvæmdir síðustu ára:2015: - Fráveitulagnir að utan og skólp endurnýjað
2017:- Rafmagn yfirfarið.
- Nýir skápar á gangi og hjónaherbergi.
- Parket slípað á gangi og stofu.
- Ný blöndunartæki á baði vaskur og sturta.
- Ný blöndunartæki í eldhús.
- Nýtt helluborð.
- Nýr ofn
2018:- Klósett sett upp í kjallara.
- Vaskur settur upp og tengdur í kjallara.
2019:- Nýtt parket á hjónaherbergi (harðparket)
- Hitaveitulagnir endurnýjaðar að innan haust
2021:- Rafmagnshleðslustöð sett upp og tengd.
- Nýr bílskúrshurðaopnari.
- Rafmagnstafla í bílskúr endurnýjuð.
2024:- Útiljós endurnýjuð ásamt raflögnum.
Nánari lýsing:
Aðalhæð:Anddyri: Komið inn í anddyrir um sérinngang. Flísar á gólfi
Hol: Tengir saman anddyri, stofur, eldhús og herbergjagang.
Stofa: Falleg, rúmgóð og björt. Samliggjandi og opin við borðstofu. Útgengt út á rúmgóðar svalir til vesturs um afar fallega vængjahurð með skrautgleri. Stigi af svölum niður í garð.
Borðstofa: Falleg, rúmgóð og björt, samliggjandi og opin við stofu. Möguleiki á að færa eldhús inn í borðstofu og fá þá 4 svefnherbergið.
Gangur: Gengið í herbergin þrjú ásamt baðherbergi úr gangi. Innbyggður 6 falldur skápur. Gott skápapláss. Skápur var endurnýjaður árið 2017, bæði innvols og skápahurðar.
Herbergi I: Rúmgott með góðu skápaplássi. Útgengt út á svalir.
Herbergi II: Gott barnaherbergi.
Herbergi III: Gott barnaherbergi.
Eldhús: Innrétting með efri og neðri skápum og borðkrók. Flísar á vegg milli skápa. Ofn og helluborð voru endurnýjuð árið 2017. Háfur fyrir ofan helluborð. Aðstaða fyrir uppþvottavél. Flísar á gólfi.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf. Bað með sturtu, handklæðaofn ásamt baðinnréttingu með skápum og skúffum, vask og speglaskáp fyrir ofan vask.
Kjallari:
Herbergi IV: 10,7fm. Gott unglingaherbergi eða útleiguherbergi. Gluggi með opnanlegu fagi. Skráð sem geymsla skv. teikningu og skráningu í fasteignayfirliti.
Salerni: Séreign eignar. Klósett og vaskur.
Geymsla: 2,3fm með vask og upphengdum hillum. Aðal rafmagnstafla húss er í geymslunni. Kvöð um aðgengi. Vilji til að færa aðaltöflu fram á sameignargang í húsinu. Mögulega hægt að breyta þá í sturtuherbergi.
Bílskúr: 29,8fm með rafmagni og hita. Bílskúrsdyraopnari endurnýjaður árið 2021. Gluggar sem snúa inn í garð. Sér bílastæði fyrir framan bílskúr. Rafmagnshleðslustöð uppsett og tengd árið 2021.
Sameign: Lítil sameign. Í sameign allra er hitagrindarherbergi merkt 0007, stigagangur merktur 0008 og sorpgeymsla merkt 0009.
Þvottahús: Sameiginlegt þvottahús með 2. hæðinni merkt 0006. Rúmgott með séraðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara. Upphengdar þvottasnúrur.
Lóð: Húsið stendur á fallegri og gróinni 912,0fm lóð. Tyrfð af stórum hluta og með fallegum stórum trjám. Steypt og hellulagt fyrir framan hús. Niðurgrafið sameiginlegt trampolín í garði.
Hiti og rafmagn:4 heitavatnsmælar og 5 rafmagnsmælar eru í húsinu. Sér rafmagns og hitamælir fyrir hverja séreign ásamt sér rafmagnsmæli fyrir sameign. Rafmagnsmælar og inntak rafmagns er staðsett í geymslu eignar merkt 0005. Hitavatnsmælar og inntök vatns eru í hitaklefa sameignar merkt 0007. Sér orkumælar fyrir hita og rafmagn í bílskúr.
Staðsetning og nærumhverfi:Eignin er staðsett í lokaðri götu í vinsælu og fjölskylduvænu hverfi í Hlíðunum, stutt frá Háteigsskóla og Ísaksskóla. Í Hlíðunum eru 8 leikskólar, Stakkaborg og Klambrar eru t.d næstu leikskólar. Tækniskólinn og Kennaraháskólinn eru þá einnig rétt hjá í nokkra skrefa fjarlægð. Stutt er í alla helstu verslun og þjónustu s.s. eins og í Kringluna, Múlana, miðbæjarins og Skeifunar. Skólar á öllum stigum í nágrenninu, íþróttasvæði Reykjavíkurstórveldisins Vals að Hlíðarenda ásamt útivistarparadísum eins og Öskjuhlíðinni, Klambratúni og Nauthólsvík.
Nánari upplýsingar veitir Hreiðar Levý Guðmundsson Löggiltur fasteignasali, í síma 6616021, tölvupóstur [email protected].Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignamiðlun fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.