Melhagi 18C, 107 Reykjavík (Vesturbær)
61.900.000 Kr.
Fjölbýli
3 herb.
56 m2
61.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
1952
Brunabótamat
29.550.000
Fasteignamat
53.450.000

!!!EIGNIN ER SELD OG FELLUR FYRIRHUGAÐ OPIÐ HÚS NIÐUR!!! Margir áhugasamir um eignina. Er með marga á kaupendalista sem eru að leita af eignum í Vesturbænum og Seltjarnarnesinu!!!

Fasteignamiðlun og Hreiðar Levý lögg. fasteignasali kynna til sölu fallega og vel skipulagða 56,3fm, 3ja herbergja rishæð að Melhaga 18C á besta stað í Vesturbæ Reykjavíkur. Eignin er skráð 56,3 fm að stærð en nýtanlegir fermetrar eru mun fleiri þar sem hluti af íbúð er undir súð. Gólfflötur eða nettó fermetrar eru 73,6fm. Eignin skiptist í Stofu, rúmgott eldhús með góðu skápaplássi, baðherbergi, tvö svefnherbergi ásamt geymslulofti (annað herbergið skráð sem geymsla skv. teikningu). Súðargeymslur inni í eldhúsi og í stofu. Afar vinsæl staðsetning í Vesturbæ Reykjavíkur með fjölbreytta og alla helstu þjónustu í göngufæri. Skólar á öllum stigum í göngufæri ásamt fjölbreyttri nærþjónustu, miðbæjarins og íþróttasvæði Reykjavíkurstórveldisins KR.

Bókið skoðun hjá Hreiðari Levý lögg. fasteignasala í síma 661-6021 eða [email protected]


Samþykkt hefur verið hjá húsfélaginu að fara í skipti á járni og pappa á þaki. Seljandi mun borga fyrir þær framkvæmdir.

Nánari lýsing:
Stigapallur: Ein íbúð á hæð. Nýtt til að taka af sér yfirhafnir og skó.
Stofa: Opin, rúmgóð og í tengingu við öll rými eignar. Innbyggður skápur í stofurými.
Eldhús: Innrétting með góðu skápaplássi ásamt borðkrók. Gluggar á tvo vegu og mikið útsýni. Á gólfi er korkur og í eldhúsi er ágæt súðargeymsla.
Baðherbergi: Var endurnýjað fyrir nokkrum árum af fyrri eigendum. Hvít innrétting, upphengt wc, flísalagður sturtuklefi, Velux þakgluggi, handklæðaofn á vegg. Á baðherbergi er tengi fyrir þvottavél og hiti í gólfi.
Svefnherbergi 1: Ágætlega rúmgott. Parket á gólfi. 
Svefnherbergi 2: Er skráð sem geymsla, ágætlega rúmgott með Velux þakglugga, sérsmíðuðum skápum innan herbergis. Á gólfi er parket. 

Rúmgott risloft yfir allri íbúðinni. 

Í kjallara húseignar er sameiginlegt þvottahús og eign fylgir gróðursæll sameiginlegur garður. 

Góð og vel skipulögð 3 herbergja risíbúð á besta stað í Vesturbæ Reykjavíkur. Skólar á öllum stigum, nærþjónusta, íþróttasvæði Reykjavíkurstórveldisins KR ásamt miðbærinn í göngufjarlægð.

Nánari upplýsingar veitir Hreiðar Levý Guðmundsson Löggiltur fasteignasali, í síma 6616021, tölvupóstur [email protected]


 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.