Hólavegur 38, 580 Siglufjörður
34.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Tvíbýli
5 herb.
124 m2
34.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
2
Inngangur
Sér
Byggingaár
1949
Brunabótamat
45.100.000
Fasteignamat
20.450.000

Fasteignamiðlun kynnir eignina Hólavegur 38, 580 Siglufjörður, nánar tiltekið eign merkt 01-01, fastanúmer 213-0456 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi. Eignin Hólavegur 38 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 213-0456, birt stærð 124.0 fm.

Nánari upplýsingar veitir Arndís Erla Jónsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 6907282, tölvupóstur [email protected].


Um er að ræða eign á tveimur hæðum í tvíbýli með sérinngangi, stórum svölum og stórum palli með heitum potti. Gengið er inn á neðri hæð eignarinnar í rúmgott anddyri með fatahengi og flísum á gólfi. Neðri hæð eignarinnar samanstendur af tveimur svefnherbergjum, baðherbergi og sameiginlegri greymslu og þvottahúsi. Svefnherbergin eru mjög rúmgóð með parket á gólfi og fataskápum. Baðherbergið er nýupgert með gráum flísum á góllfi og sturtu. Veggir eru sementsmúraðir í gráum lit. Innrétting er hvít með skúffum, borðplata er hvít með vask og klósett er upphengt. Sturta er mjög rúmgóð walk in með nýjum blöndunartækjum og dökku sturtugleri. Skipt var um vatnslagnir og frárennsli út í götu. Hiti er í gólfi og handklæðaofn. Gengið er upp tímburstiga en ágætis geymslurými er undir stiga. 
Efri hæð samanstendur af stofu, eldhúsi, svefnherbergi, baðherbergi og hálofti. Stofa er mjög rúmgóð og skiptist í borðstofu og sjónvarpsrými. Útgangur er út á stórar timbursvalir með skjólveggjum og frábæru útsýni yfir fjörðinn. Mikið gluggarými er í stofu og parket er á gólfi. Eldhús er með efri og neðri skápum og bláum flísum á milli. Flísar eru á gólfi og gluggar með opnanlegu fagi. Svefnherbergi er parketlagt með skápum. Baðherbergi er lítið með klósetti og vask. Einnig er aðgangur að hálofti inn á baðherbergi með stiga sem er áfastur við loftaplötu. Öndun er í gegnum rör í lofti. Háloftið er ágætis geymsluloft með gluggum. 
Garður er með aflokuðum palli sunnan við hús með heitum potti. Fyrir utan pall er grasflötur. 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,4% - 0,8% hjá einstaklingum og 1,6% hjá lögaðilum af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðflutningsskjölum, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. þjónustusamning.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignamiðlun fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.